Um FISK Seafood
Sérhæfing í bolfiski
Fisk Seafood ehf. er eitt af stærstu sjávarútvegsfyrirtækjum landsins. Félagið sérhæfir sig í veiðum á bolfiski og vinnslu hans í léttsaltaðar og sjófrystar afurðir auk framleiðslu á hefðbundnum saltfiski. Félagið hefur aðsetur og rekur stærstan hluta starfsemi sinnar á Sauðárkróki en í samstæðu þess eru einnig Soffanías Cecilsson ehf. í Grundarfirði, útgerðarfélögin Kiddi Dóra ehf., Ölduós ehf., Steinunn ehf. og Lundhöfði ehf. (frá júlí 2024) auk eignarhaldsfélagsins FISK Seafood fjárfestingar ehf. Samstæðan gerir út einn frystitogara, tvo ferskfisktogara og tvo ísfisktogara auk smærri skipa og báta. Árið 2024 voru hjá samstæðunni 257 stöðugildi og komu um 77% tekna FISK og SC erlendis frá. Stærstu markaðslönd samstæðunnar fyrir saltaðar afurðir eru Spánn, Ítalía, Portúgal, Grikkland, Bretland og Frakkland en fyrir sjófrystar afurðir eru það Bretland, Bandaríkin, Pólland og Kórea. Hliðarafurðir eru einkum seldar til Nígeríu, Kóreu og Kína.

FISK Seafood leggur mikla áherslu á sjálfbærni í öllum sínum rekstri. Sjálfbærniverkefnin eru bæði mörg og misstór en öll mikilvæg. Þau stærstu snúa að áformum um byggingu hátæknifrystihúss og endurnýjun skipa. Á meðal annarra stærri verkefna má nefna uppfærslu kælimiðla um borð í núverandi flota, enn frekari flokkun á úrgangi, markvissa minnkun urðunar og kolefnisjöfnun rekstursins með skógrækt. Rekstrarlegir óvissuþættir sem FISK Seafood getur lítil sem engin áhrif haft á eru ýmsir. Þeir mikilvægustu sem snúa að ákvörðunum stjórnvalda hverju sinni eru ákvarðanir um fiskveiðiheimildir, veiðigjöld og aðra skattlagningu ásamt fríverslunar- og tollasamningum Íslands við önnur ríki. Á meðal annarra þátta sem eru utan valdsviðs félagsins má nefna menningu, kaupmátt og neyslumynstur á helstu markaðssvæðum, verðsamkeppni á alþjóðlegum matvælamarkaði og gengisskráningu helstu gjaldmiðla. Til lengri tíma litið er þróun lífríkis hafsins vegna aukinnar súrnunar og mengunar, með tilheyrandi mögulegum áhrifum á ímynd villibráðarinnar sem þangað er sótt, á meðal þess sem sjávarútvegurinn, og raunar heimsbyggðin öll, þarf að takast á við.
Rekstur samstæðu FISK Seafood er háður ítarlegu regluverki og opinberu eftirliti hvað varðar fiskveiðar, vinnslu og sölu á afurðum. Félagið leggur áherslu á að viðhafa og fylgja eftir skýrum ferlum og eftirlitskerfum svo að tryggt verði að rekstur þess uppfylli gerðar kröfur til hins ýtrasta. Rekjanleiki afurðanna, sjálfbærni starfseminnar, umhverfisþættir og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna skipta þar miklu máli.
FISK Seafood var stofnað árið 1955 þegar Kaupfélag Skagfirðinga stofnaði Fiskiðju Sauðárkróks. Hún varð síðar hluti af FISK Seafood og hefur vöxtur félagsins síðan einkum orðið með kaupum á fiskveiðiheimildum og samruna við önnur sjávarútvegsfyrirtæki. Má þar helst nefna Útgerðarfélag Skagfirðinga, Skjöld, Hraðfrystihús Grundarfjarðar, Soffanías Cecilsson og Skagstrending auk kaupa á minni útgerðum. Félagið er um þessar mundir fjórða stærsta útgerðarfélagið á Íslandi með 6,10% hlutfall af heildarkvóta landsins.
FISK Seafood er í eigu Kaupfélags Skagfirðinga sem er samvinnufélag rúmlega 1.100 einstaklinga sem flestir eru búsettir í Skagafirði. Margir þeirra hafa verið eða eru starfandi í landbúnaði og tengdri starfsemi í héraðinu. Í hinu dreifða eignarhaldi með sinni lýðræðislegu ákvarðanatöku er fólgin rík skuldbinding og tryggð félagsins við heimahagana.
„Við berum hins vegar alla ábyrgð á plastmengun í hafinu og stefnum þannig bæði lífinu í sjónum og heilnæmi villibráðar hans í hættu.