UM SKÝRSLUNA

Sjálfbærniskýrsla FISK Seafood er birt samhliða ársuppgjöri. Í skýrslunni er fjallað um ófjárhagslega þætti starfseminnar og nær hún yfir rekstur samstæðu FISK Seafood ehf. nema annað sé tekið fram. 

image description

Skýrslan tekur til ársins 2024 þar sem upplýsingar og mælingar eru byggðar á gögnum og þekkingu sem fyrirtækið hefur undir höndum á þeim tímapunkti sem skýrslan er skrifuð. Hún er ekki tæmandi yfir þau áhrif sem fyrirtækið hefur á samfélag, umhverfi og efnahag. Skýrslan hefur ekki verið endurskoðuð af þriðja aðila.

Skýrslan er yfirgripsmikill og nákvæmur leiðarvísir þar sem m.a. er tekið á umhverfismálum, sjálfbærri nýtingu fiskistofna, starfsreglum stjórnar, jafnréttismálum, persónuvernd, öryggismálum, mannréttindum, virðingu, innra eftirliti, áhættustýringu o.fl. Sjálfbærniskýrslan er unnin samkvæmt leiðbeiningum Samtaka atvinnulífsins, Viðskiptaráðs Íslands og Staðlaráðs Íslands auk UFS leiðbeininga Nasdaq kauphallarinnar, útgáfu 2.0 frá febrúar 2020.

Ritstjórn: Friðbjörn Ásbjörnsson, Kristinn Kristófersson, Stefanía Inga Sigurðardóttir og Sunna Dögg Þorsteinsdóttir.

Ljósmyndir: Davíð Már Sigurðsson. 

Útgefið: Júní 2025.

Samt hlýt ég að gera það þegar stjórnvöld hyggjast um þessar mundir meira en tvöfalda veiðigjöld á sjávarútveginn – hækka þau jafnvel um hátt í 150%.